Lendar
Myndlistarsýning
Föstudaginn 11. september opnar Solveig Thoroddsen sýningu sína Lendar í Mjólkurbúðinni - Sal Myndlistarfélagsins, Kaupvangsstræti 12, Akureyri.
Sýningin stendur til og með 20. september
og er opin á eftirfarandi tímum:
Opnun föstudag 11. september kl. 17-19
Helgin 12. -13. sept. kl. 12-17
Fimmtudag 17. sept. - sunnudags 20. sept. kl. 12-17
Verið öll hjartanlega velkomin!
------------------------------------------------------------------
Lendar sýna nýleg verk Solveigar þar sem hún hefur skapað litríkan ævintýraheim, landslags og ýmissa vera. Hún segir verk sín meðal annars vera undir áhrifum frá Tove Janson og múmínálfunum svo og þjóðsögum. Hún leitast við að skapa myrka, ævintýralega stemningu í heimi þar sem ógnir og vá vofa yfir en þó sé alltaf rými fyrir fegurð, kærleik og leikgleði. Þá er persónuleg upplifun listakonunnar við staði, sögu og atburði áberandi.
Verkin eru unnin í ýmsa miðla; Myndbandsverk sem einnig er sýnt í sama mánuði á kvikmyndahátið ICJ International Film Award, sem það var valið inn á, málverk, vatnslitamyndir, skúlptúr og veggteppi unnin úr fundnu efni.
Solveig Thoroddsen stundaði nám við Myndlistardeild LHÍ og útskrifaðist með meistaragráðu þaðan árið 2015. Solveig vinnur í ýmsa miðla eða þá sem hentar hverju sinni og eru viðfangsefnin samskipti manneskjunnar og náttúrunnar og gjarna með feminísku ívafi.