Til baka

Lestrarfriður

Lestrarfriður

Hefurðu löngun til að gefa þér tíma til að lesa og njóta kyrrðarinnar?
Þá er Lestrarfriður eitthvað fyrir þig!
Lestrarfriður (e. Silent Book Club) er notaleg og óformleg samvera þar sem fólk kemur saman til að lesa í ró og næði. Engin skyldulesning, engar væntingar og engin pressa – bara bækur, notaleg stemning og sameiginlegur tími til að njóta lestursins.
Þú kemur einfaldlega með þína eigin bók, rafbók eða hljóðbók og velur þér notalegan stað. Við byrjum á því að lesa saman í þögn en að lestrinum loknum gefst þeim sem vilja tækifæri til að spjalla um bækurnar sínar, deila lestrarupplifun eða kynnast öðrum bókaunnendum.
Þú ræður sjálf/ur hvort þú tekur þátt í spjallinu eða nýtur einfaldlega kyrrðarinnar.
Komdu með bókina þína og njóttu lestrarstundar í góðum félagsskap. Þú þarft ekki annað en að mæta! #ReadForReal
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.
Hvenær
fimmtudagur, desember 3
Klukkan
19:00-22:00
Hvar
Amtsbókasafnið á Akureyri