Myndverk Önnu Jóa hverfast um myndbreytingareðli umhverfis og hugarheima og eru sprottin af skynrænni snertingu við efni og mynstur á dvalarstöðum hennar og í hversdagslegum veruleika. Hún hefur einkum fengist við að gera olíumálverk, vatnslitamyndir, teikningar og ljóðræna texta sem tengjast efnislegum hlutum, formi þeirra og ásýnd.
Anna lauk námi frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og meistaragráðu í myndlist frá École nationale supérieure des Arts Décoratifs (ENSAD) í París árið 1996. Hún nam síðar listfræði við Háskóla Íslands. Anna hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í samsýningum á Íslandi og erlendis. Verk eftir hana eru í eigu stofnana, fyrirtækja og einkaaðila. Anna var einn stofnenda sýningarrýmisins Gallerís Skugga og hefur hún starfað við sýningarstjórnun, sinnt ritstörfum, listgagnrýni og stundakennslu í listfræði við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Hún starfar nú sem sérfræðingur á Listasafni Íslands.
Hulda Ágústsdóttir vinnur í verkum sínum með spegilmyndir og tilfærslur hversdagslegra hluta þar sem skilin á milli ytra og innra umhverfis leysast upp.
Hulda Ágústsdóttir stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk meistaragráðu í myndlist frá Pratt Institute í New York árið 1993. Árið 2018 lauk Hulda MA-gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum og komið að ýmsum verkefnum á sviði myndlistar á undanförnum árum.
Ragnheiður Guðbjargar Hrafnkelsdóttir beinir sjónum sínum að hinu hversdagslega umhverfi og hlutum sem við umgöngumst í daglegu lífi. Verkin hverfast um tengsl mannshugans við efnisheiminn; hvernig við upplifum hann og túlkum. Í verkum sínum leitast Ragnheiður við að snúa uppá þær hefðbundnu vísanir sem tengjast ýmsum hlutum — hvort sem um er að ræða borðklúta, prjónaða þumla eða annað úr umhverfinu, og kalla fram hugrenningatengsl sem ekki eru fyrirsjáanleg.
Ragnheiður útskrifaðist úr Skolen for Brugskunst í Kaupmannahöfn 1982 og stundaði nám við Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam á árunum 1982-4. Hún lauk meistaragráðu frá Pratt Institute í New York. 1991 og síðar BA-gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands. Ragnheiður býr og starfar í Reykjavík.