Línudagurinn
Fjölbreytt dagskrá verður í boði
Á hverju ári erum við með sérstakan dag til að halda upp á einhverjar bókmenntir t.d. Harry Potter og Múmínálfana síðustu ár. 15. júlí 2026 ætlum við að halda upp á LÍNUDAGINN í tilefni 80 ára afmælis sögunnar um Línu Langsokk í fyrra.
Línu þarf varla að kynna fyrir landsmönnum en hún er ástsæl persóna úr bókum Astrid Lindgren. Lína er þekkt fyrir rautt hár og fléttur, ósamstæða sokka, mikinn styrk, sjálfstæði og ævintýragirni. Hún býr ein á Sjónarhóli með apanum Herra Níels og hestinum sínum sem oft er kallaður Litli kall.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði; ratleikur, sokkamálun, myndabás, leikir fyrir krakkana, sögustund og fleira sem verður auglýst þegar nær dregur.
Takið daginn frá, hlökkum til að sjá ykkur í Línu-stuði!