Til baka

List og ljóð á Ketilkaffi

List og ljóð á Ketilkaffi

Ljóðastund í hádegi á sunnudegi. Lestur úr úrvali nýrra ljóðabóka.

Við bjóðum ykkur að njóta ljóða & lista með okkur á Ketilkaffi sunnudaginn 6. desember kl. 12.00.

Nokkur ljóðskáld að sunnan bjóða til huggulegs lesturs úr nýútgefnum verkum sínum sem hafa vakið mikla athygli í jólabókaflóði ársins. Þær sem fram koma eru:

• Védís Eva Guðmundsdóttir les upp úr Brotnum línum
• Melkorka Ólafsdóttir les upp úr Hverfu
• Ragnheiður Harpa Leifsdóttir les upp úr Deig (handhafi bókmenntaverðlauna Tómas Guðmundssonar 2026).

Höfundar bjóða áritaðar bækur á tilboðskjörum á staðnum eftir upplestur.

Þessi viðburður er styrktur af Skáld hóteli og með framlagi úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar.

Hvenær
sunnudagur, desember 6
Klukkan
12:00-13:00
Hvar
Ketilkaffi