Til baka

Listamannaspjall með Gunnari Kr. Jónassyni í Listasafninu

Listamannaspjall með Gunnari Kr. Jónassyni í Listasafninu

Laugardaginn 20. apríl kl. 15 verður listamannaspjall með Gunnari Kr. Jónassyni um verk hans á samsýningunni Sköpun bernskunnar. Auk Gunnars eru þátttakendur á sýningunni Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og nemendur úr leikskólanum Naustatjörn og grunnskólunum Glerárskóla og Naustaskóla.

Gunnar Kr. Jónasson býr og starfar á Akureyri. Hann hefur lengi unnið að myndlist, framan af meðfram öðrum störfum og atvinnurekstri. Gunnar vinnur jöfnum höndum í málverki, teikningum og þrívíðum verkum. Á sýningunni tengir hann við þemað með vísunum í hringsól risaskepna úthafsins, jörðina, óveður, hvirfilbil og storma, eldgos, tíma, sól og skugga.

Þetta er ellefta sýningin undir heitinu Sköpun bernskunnar. Hún er sett upp sem hluti af safnfræðslu, með það markmið að gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn. Unnin eru verk sem falla að þema sýningarinnar, sem að þessu sinni er hringir.

Hvenær
laugardagur, apríl 20
Klukkan
15:00-15:30
Verð
Aðgangseyrir inn á safnið - frítt fyrir 18 ára og yngri