Listamannaspjall með Ými Grönvold og Vikari Mar
Listamannaspjall um sýninguna Milli fjalls og fjöru í Listasafninu
Á Akureyrarvöku, laugardaginn 30. ágúst, kl. 15 verður boðið upp á listamannaspjall með Ými Grönvold um sýningu hans Milli fjalls og fjöru sem verður opnuð samdægurs kl. 15 í sal 09 í Listasafninu. Stjórnandi listamannspjallsins er Vikar Mar, myndlistarmaður.
Verk Ýmis eru innblásin af náttúrunni s.s. fjöllum, fossum, hafi, dýralífi og plöntum. Oft eru þessi viðfangsefni túlkuð á frjálslegan og persónulegan hátt. Fyrri sýningar hans hafa beinst að umbreytingu og tengslum, með áherslu á vöxt og hreyfingu innan náttúrulegra hringrása. Sýningin Milli fjalls og fjöru byggir á þessum grunni. Hún rannsakar rýmið á milli hins fasta og breytilega, þar sem náttúrulegir ferlar, litir og áferð mætast og til verða fjölbreyttar myndrænar lýsingar á umbreytingu og tengslum.
Ýmir Grönvold býr og starfar í Reykjavík. Hann útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA-gráðu í myndlist 2018 og var í skiptinámi við KABK og Konunglegu listaakademíuna í Den Haag. Ýmir vinnur með málverk, teikningar og fundin efni og hefur í verkum sínum rannsakað fjölbreytt þemu, allt frá Tarot og andlegri leit til landslags og náttúrutúlkunar.