Til baka

Listamannaspjall um samsýninguna Hringfarar

Listamannaspjall um samsýninguna Hringfarar

Fræðandi spjall við listamenn.

Listamannaspjall um samsýninguna Hringfarar í sölum 02-05. Stjórnandi Hlynur Hallsson, safnstjóri.

Samsýning
Hringfarar
26.08.2023-14.01.2024
Salir 02 03 04 05

Listamennirnir sem hér koma saman vinna út frá náttúrulegum ferlum, efniviði og samhengi. Hver og einn hefur sína persónulegu nálgun, en sameiginlega mengið er efniviður úr nærumhverfinu, sem hver og einn vinnur með á sinn persónulega hátt.

Verk Sólveigar Aðalsteinsdóttur endurspegla hugleiðingar um tíma og umhverfi, náttúruna, vöxt og gróður, þar sem mörk innri og ytri veruleika eru ekki endilega ljós.

Elsa Dóróthea Gísladóttir vinnur með hverfulleika, sjálfbærni, ræktun, lífkerfi og alkemíu hvunndagsins. Tíminn er afar mikilvægur þáttur í hennar verkum.

Guðjón Ketilsson vinnur gjarnan með fundna hluti sem geyma minningar og sögur liðinna atburða. Hann skrásetur þá, endurskipuleggur og setur í annað samhengi.

Daglegt umhverfi hefur oft verið kveikjan að verkum Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur, svo sem rauðrófuhýði í vatni sem hefur myndað rauðan lit og pappírsörk á glugga sem raki hefur teiknað á.

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 26. ágúst
Tímasetning: kl. 16.30 - 17.00
Staðsetning: Listasafnið á Akureyri, Salir 02 03 04 05
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir


Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku 2023.

Hvenær
laugardagur, ágúst 26
Klukkan
16:30-17:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir