Til baka

Listasmiðja á Glerártorgi

Listasmiðja á Glerártorgi

Opin listasmiðja fyrir börn og foreldra
Listasmiðjan verður laugardaginn 3. október frá kl. 14 - 16 á Glerártorgi og hægt er að koma við hvenær sem er á meðan smiðjan stendur yfir. Smiðjan er haldin við hliðina á Flying Tiger.
Listakonurnar Jonna og Brynhildur leiða smiðjuna. Í smiðjunni ætla þær að vinna í anda japönsku listakonunnar Yayoi Kusama, sem er þekkt fyrir litríka list og doppur. ,,Við ætlum að skapa okkar eigin listaverk með sveppi og hjörtu sem viðfangsefni, klippa, líma, raða og leika með liti og form," segja listakonurnar.
 
Í lokin verður haldin sýning á verkunum á Glerártorgi sem stendur út október í tilefni af Bleikum október.
 
Við hlökkum til að sjá sem flesta! 💗
 
Glerártorg – fyrir góðar stundir
Hvenær
laugardagur, október 3
Klukkan
14:00-16:00
Hvar
Glerártorg
Verð
Frítt