Til baka

Listasumar á Akureyri - Fjöldi daglegra viðburða

Listasumar á Akureyri - Fjöldi daglegra viðburða

Fjöldi viðburða og listasmiðja í júlí á Listasumri

Listasumar á Akureyri 2020 verður sett föstudaginn 3. júlí og lýkur þann 31. júlí. Ævintýrin verða til á Listasumri með fjölbreyttum uppákomum og upplifunum þar sem gestir og bæjarbúar njóta viðburða saman. Listasmiðjur á Listasumri 2020 skipa veglegan sess eins og hefð er fyrir. Fjölbreyttar smiðjur fyrir börn og fullorðna eru í boði í júlí - sjá nánari upplýsingar í viðburðadagatalinu HÉR. Athugið að skráning er nauðsynleg á allar listasmiðjur.  

Verkefnastjórn Listasumars er í höndum Sigríðar Örvarsdóttur og Almars Alfreðssonar. Hægt er að senda þeim línu í netfangið listasumar@akureyri.is

Samstarfsaðilar Listasumars eru:
Akureyrarbær, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Rósenborg, Gilfélagið, Menningarhúsið Hof, Sundlaug Akureyrar, Iðnaðarsafnið, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bílaklúbbur Akureyrar, Geimstofan, Myndlistarfélagið.

Nánari upplýsingar:

Heimili Listasumars á samfélagsmiðlum er finna á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og á Instagram.
Einnig mælum við með að gestir Listasumars noti myllumerkin #listasumar #akureyri #hallóakureyri 

Viðburðadagatal Listasumars 2020 HÉR

English version HERE

Hvenær
3. - 31. júlí
Hvar
Akureyri
Nánari upplýsingar