Til baka

Vídeólistasýning úr listasmiðju Lundarskóla

Vídeólistasýning úr listasmiðju Lundarskóla

Vídeólistsýning grunnskólabarna.

Eftir að samkomutakmörkunum var létt og létt hefur verið á reglum í skólastarfi hefur smá saman verið hægt að gera meira og leyfa blönduðum hópum að koma saman. Síðustu vikur hafa verið í gangi Listasmiðjur í Lundarskóla fyrir nemendur Lundarskóla í 4. – 6. bekk. Hressir krakkar hafa mætt á föstudögum eftir skóla og unnið að skemmtilegum verkefnum. Stop motion – hreyfimyndagerð, Animation – teiknimyndagerð, kyrralífsmyndir, teiknimyndasögur og klippimyndir eru viðfangsefni smiðjanna sem hófust í febrúar og þeim lauk í lok mars. Þessar listasmiðjur hafa verið valfrjálsar og enginn aðgangseyrir að þeim og eru eingöngu ætlaðar til ánægju.

Þessi sýning er afrakstur stafræns hluta af þessum smiðjum.


Verkefnið nýtur stuðnings Akureyrarbæjar og er hluti af Barnamenningarhátíð.

Hvenær
24. apríl - 16. maí
Klukkan
12:00-17:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri / Akureyri Art Museum, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Frítt fyrir 18 ára og yngri