Til baka

Ljóðamót 01 / Ljóðaklúbbur Akureyrar

Ljóðamót 01 / Ljóðaklúbbur Akureyrar

Fyrsta Ljóðamót Ljóðaklúbbs Akureyrar. Byrjum á að fjalla um norðlensk skáld.
Boðið er til ljóðamóts í Svörtum bókum. Eitt ljóðamót verður í mánuði, með ólíkum áherslum, og við byrjum á heimavelli. Fjöllum um og lesum ljóð eftir norðlensk skáld, þriðjudagskvöldið 17. mars kl. 20.00. Arnar Már Arngrímsson og Rakel Hinriksdóttir leiða stundina. Enginn aðgangseyrir.
Öll sem hafa áhuga á ljóðum og bókmenntum eru hvött til þess að mæta og vera með. Virk þáttaka, þar sem gestur kemur sjálfur með ljóð eða fróðleik er mjög velkomin, og allt yfir í að mæta bara til þess að hlusta og njóta. Reikna má með 1 - 1.5 klukkustund.
 
Eigum fyrst og fremst góða stund saman, þar sem ljóðin leiða umræðuna. Ljóðskáld á svæðinu eru sérstaklega hvött til þess að vera með, og jafnvel lesa fyrir klúbbinn ef þau vilja deila verkum sínum.
 
--//--
Ljóðaklúbbur Akureyrar hefur nú þegar verið starfræktur vikulega á Hlíð í u.þ.b. 3 ár. Rakel stofnaði hann með nokkrum íbúum Hlíðar þegar hún var starfsmaður þar í félagsstarfinu. Síðan hún hætti um áramótin 2024-25, hefur Ljóðaklúbburinn haldið áfram sem sjálfboðaliðaverkefni.
Markmið klúbbsins er að halda ljóðlist frá ýmsum tímabilum og víðsvegar úr bókmenntasögu Íslendinga á lofti. Hjá eldri borgunum sem sækja klúbbinn hefur Ljóðaklúbburinn mikið gildi, en mörg hver muna þau vel ljóðin sem þau ólust upp við að læra og tileinka sér.
Markmiðið með því að bjóða líka upp á opin ljóðakvöld einu sinni í mánuði, er að styðja við mikilvægi og stöðu ljóðsins í íslenskri nútímamenningu.
Viðburðirnir eru styrktir af Menningarsjóði Akureyrarbæjar.
 
--//--
Um fólkið á bak við klúbbinn:
Rakel Hinriksdóttir er fjölmiðlakona og listakona, sem hefur meðal annars gefið út tvær ljóðabækur og eitt Pastelrit hjá Flóru Menningarhúsi.
Arnar Arngrímsson er íslenskukennari og rithöfundur, sem hefur meðal annars hlotið Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir bók sína Sölvasaga unglings.
Hvenær
þriðjudagur, mars 17
Klukkan
20:00-21:30
Hvar
Svartar bækur fornbókabúð
Verð
Frítt inn