Til baka

Ljósaganga gegn ofbeldi

Ljósaganga gegn ofbeldi

Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Þriðjudaginn 25. nóvember kl.16:30 fer fram ljósaganga á Akureyri í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. #16 dagar
 
Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991. Tímabil átaksins tengir á táknrænan hátt saman dagana 25. nóvember sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. desember sem er alþjóðlegi mannréttindadagurinn. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls ofbeldis.
 
Í ár er sjónum beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum.
 
Gengið verður frá Ráðhústorgi að Amtsbókasafninu þar sem Hjalti Ómar Ágústsson sérfræðingur á Jafnréttisstofu flytur stutt erindi.
Að göngunni standa Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Femínistafélag MA, Zontaklúbbur Akureyrar og Zontaklúbburinn Þórunn hyrna.
 
Við hvetjum ykkur öll til að mæta og ganga saman gegn ofbeldi.
Hvenær
þriðjudagur, nóvember 25
Klukkan
16:30
Hvar
Ráðhústorg