Til baka

Ljótu Hálfvitarnir

Ljótu Hálfvitarnir

Ljótu Hálfvitarnir fagna 20 ára afmæli Græna hattsins.

Það er næstum alltaf gaman að vera boðið í afmæli, ekki síst ef um stórafmæli er að ræða og afmælisbarnið er einhver sem er samofinn þínum eigin lífsferli. Því eru Ljótu hálfvitarnir yfir sig spenntir og glaðir að taka þátt í 20 ára afmæli Græna hattsins og hyggjast fagna því á sama hátt og þeir hafa oft gert áður, með því að þolreyna gólfið á Bláu könnunni. Til hamingju Græni hattur með að vera loksins orðinn nógu gamall til að mega neyta áfengis.

Hvenær
laugardagur, febrúar 11
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
5900