Er þessum hálfvitum ekkert heilagt? kunna margir að spyrja sig. Ætla þeir að halda útgáfutónleika í byrjun júlí, má þetta bara? Svarið er að mestu já, Ljótu hálfvitarnir ætla að fagna útgáfu sinnar fyrstu plötu í fimm ár, Hótel Edda, á Græna hattinum með tvennum tónleikum,3. og 4.júlí. Þar verður leikinn og sunginn bróðurparturinn af nýju plötunni í bland við eldri lög.
Forsalan er hafin á grænihatturinn.is