Gönguleiknum Þaulanum hjá Ferðafélagi Akureyrar lýkur 20. september. Þá þarf að vera búið að skila inn þátttökublöðum.
Fimmtudaginn 26. september verður dregið úr réttum lausnum í kaffiteríunni á Amtsbókasafninu og hefst viðburðinn kl. 17.
Öll börn sem tóku þátt í leiknum fá viðurkenningarskjal og þau sem luku leiknum eiga von um vinning ef þeirra nöfn verða dregin út.
Fullorðnir sem skiluðuð inn þátttökublöðum eiga einnig von á vinningi ef þeirra nöfn verða dregin út.
Gaman væri að sjá sem flesta við þetta tækifæri, bæði fullorðna og börn. Boðið verður upp á kaffi og djús.
Ferðanefnd FFA