Til baka

Lúðar og Létt Tónlist

Lúðar og Létt Tónlist

Lúðarnir Gísli Einars, Sóli Hólm og Hvanndalslúðarnir Valur, Summi og Röggi Gáfaði á stórkostlegri skemmtun.

Þeir snúa aftur eftir alltof stutta bið, Lúðarnir Gísli Einarsson og Sóli Hólm ásamt Hvanndalsdúllunum þeim Rögnvaldi Gáfaða, Val Frey og Summa. Þeir hafa undanfarin ár komið saman í desembermánuði án þess að nokkur sé í raun að biðja þá um það, þeir telja í nokkur skemmtileg lög að þeirra sögn og segja sögur af af fólki og fé. Allur aðgangseyrir rennur beint í þeirra eigin vasa og verður sjálfsagt eytt í einhvern algjöran óþarfa. Græni Hatturinn vill fyrirfram biðjast afsökunar á þessum viðburði.

 

 

Hvenær
föstudagur, desember 10
Klukkan
21:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4990
Nánari upplýsingar

Heimasíða Græna hattsins HÉR