Til baka

Lúðar og létt tónlist

Lúðar og létt tónlist

Lúðar og létt tónlist. ójólalegustu jólatóneikar ársins.
Lúðar og létt tónlist
Það hefur engin verið að bíða, en þeir snúa hinsvegar alltaf aftur Lúðarnir með sína léttu tónlist. Að þessu sinni samanstanda Lúðarnir af þeim Rögnvaldi Gáfaða, Val Frey og Summa sem eru hvað þekktastir fyrir vasklega framgöngu sína í hljómsveitinni Hvanndalsbræðrum, hinum ótrúlega Gísla Einarssyni sjónvarpsmanni og hagyrðingi og Frey Eyjólfssyni sjónvarps, tónlistar og útvarpsmanni en Freyr er einnig þekktur fyrir sínar frábæru eftirhermur. Sem fyrr telur hópurinn í nokkur lög og segir sögur af fólki og búfénaði. Þetta verður kannski ekki vandað, en þetta verður gaman. Græni Hatturinn vill enn og aftur biðjast fyrirfram afsökunar á þessum viðburði, fólk getur óskað eftir endurgreiðslu áður en það kaupir miða.
 
Hvenær
laugardagur, desember 10
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4900