Til baka

Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Vídeóinnsetning eftir Yuliönu Palacios
Ég hef mokað snjó í samtals 130 klukkustundir. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Ég er búin að bæta mig í íslensku. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Ég er búin að læra að syngja “Með stjörnunum” með Herberti Guðmundssyni. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Ég hef fengið listamannalaun. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Ég borða hamborgarhrygg hver einustu jól. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Ég hef lokið MA prófi frá íslenskum háskóla. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Ég hef sporðrennt heilu flaki af reyktum silungi í einni setu. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Ég hef stofnað menningarhátíð á Íslandi. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Ég á íslenskt barn. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Ég hef farið í réttir. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Amma hefur prjónað þrjár lopapeysur á mig. Má ég fá ríkisborgararétt núna?

Ég hef sótt um ríkisborgararétt þrisvar sinnum. Má ég fá ríkisborgararétt núna?
 
Vídeóinnsetningin “Má ég fá ríkisborgararétt núna?” opnar í Deiglunni 19. nóvember. Sýningin er aðeins opin þennan dag.
Yuliana Palacios er dansari og danshöfundur frá Mexíkó sem hefur verið búsett á Íslandi síðan 2016. Yuliana lærði samtímadans við Háskólann í Veracruz(UV) og sviðslistir við Listaháskóla Íslands. Frá því Yuliana settist að á Íslandi hefur hún unnið sjálfstætt að eigin verkum auk þess að sinna kennslu. Undanfarin ár hefur Yuliana æ meira fengist við vídeódans við listræna tjáningu sína og er “Hér á ég heima” (2024) sem frumsýnt var á Listahátíð í Reykjavík sama ár ein birtingarmynd þess. Einnig vídeódanshátíðin Boreal sem hún kom á fót 2020 og hefur síðan verið haldin árlega í ýmsum sýningarrýmum Listagilsins á Akureyri.
Yuliana hefur unnið mikið í samstarfi við annað listafólk, mest tónlistar- og myndlistarfólk. Með samstarfinu hefur Yuliana leitast við að auka vægi nýmiðla og tækni í verkum sínum og að blanda þeim saman við danshreyfingar. Meðal helstu hugðarefna Yuliönu við listsköpun eru uppruni, einkenni, forvitni og þrautseigja manneskjunnar í hörðum heimi. Yuliana hefur unnið með fjölbreyttri flóru listafólks bæði hér- og erlendis, í heimalandi sínu Mexíkó en einnig með hópum á meginlandi Evrópu.
Hvenær
fimmtudagur, nóvember 19
Klukkan
15:00-20:00
Hvar
Deiglan
Verð
Enginn aðgangseyrir