Til baka

Majó - Opið hús í Laxdalshúsi

Majó - Opið hús í Laxdalshúsi

Sérstök opnun Majó í tilefni Akureyrarvöku.

Matur, drykkir og list í elsta húsi bæjarins! 

Í tilefni Akureyrarvöku og tveggja ára afmæli Majó í Laxdalshúsi verður sérstök opnun og opið frá kl. 13 og fram eftir kvöldi. Um að gera að kíkja við, sjá húsið, panta sér drykk eða léttan rétt af sérstökum matseðli sem verður í tilefni dagsins og tylla sér við langborð í öðrum hvorum salnum eða jafnvel úti á bak við hús ef veður leyfir. Orri vinur okkar verður á grillinu fyrir aftan hús að græja kjúklingaspjót að mið-austurlanda sið og annað góðgæti og við verðum að sjálfsögðu með vel valið sushi á matseðli. Opið verður inn á vinnustofu listamannsins Jónínu Bjargar (sem er annar helmingur Majó teymisins) og list uppi um alla veggi.

Hlökkum til að sjá ykkur! 

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 26. ágúst
Tímasetning: kl. 13.00 - 22.00
Staðsetning: Laxdalshús, Hafnarstræti 11
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir


Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku 2023.

Hvenær
laugardagur, ágúst 26
Klukkan
13:00-22:00
Hvar
Hafnarstræti 11, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir