Tónlist, töfrar og leiklistarsaga í 120 ár.
Þann 20. janúar 1907 fór fyrsta frumsýningin fram á fjölum Samkomuhússins. Leikfélag Akureyrar fagnar þessum tímamótum með einstakri hátíðardagskrá þar sem stiklað verður á stóru í 120 ára leiklistarsögu þessa fallega húss. Flutt verða lög og stuttar senur úr ástsælum sýningum á borð við My Fair Lady, Litlu hryllingsbúðina, Fjalla Eyvind og Deleríum Búbónis.
Hugljúf, nostalgísk og skemmtileg kvöldstund sem enginn leikhúsunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.
Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson
Leikmynd og búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir
Tónlistarstjórn: Jóhann Axel
Hljóðhönnun: Gunnar Sigurbjörnsson
Ljósahönnun: Lárus Sveinsson
Hár og förðun: Harpa Birgisdóttir
Leikarar: Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Jökull Smári Jakobsson, Urður Bergsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir
Tegund: Afmælistónleikar og sýning
Athugið: Takmarkaður sýningafjöldi!