A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega, nú í ellefta sinn. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Listnámsbrautar VMA og Myndlistarfélagsins á Akureyri. A! er eina hátíðin á Íslandi sem einbeitir sér eingöngu að gjörningalist.
Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum, dans- og leikhúsfólki. Á meðal þeirra sem komið hafa fram eru Sigurður Guðmundsson, Gjörningaklúbburinn, Dustin Harvey, Rúrí, Theatre Replacement, Hekla Björt Helgadóttir, Curver Thoroddsen, Brák Jónsdóttir, Tales Frey, Anna Richardsdóttir, HH Suersaq, Harpa Arnardóttir, Snorri Ásmundsson, Heather Sincavage, Olya Kroytor og Dýrfinna Benita Basalan.
Á hverju ári breytir hátíðin Akureyri í suðupott spennandi gjörninga. Frítt er inn á alla viðburði.
Verkefnisstjóri: Sara Bjarnason.