Til baka

Daníel Bjarnason stjórnar Brahms

Daníel Bjarnason stjórnar Brahms

Daníel Bjarnason stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í flutningi tveggja af ástsælustu verkum Johannesar Brahms: 1. sinfóníunni og Tvöfalda konsertinum fyrir fiðlu og selló.

Brahms er gjarnan talinn einn hinna þriggja stóru B-a tónlistarsögunnar — Bach, Beethoven og Brahms — og skipar þannig sess meðal áhrifamestu tónskálda vestrænnar tónlistar.

Einleikarar í Tvöfalda konsertinum eru hjónin Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari og Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari. Guðbjartur hefur komið fram víða um Evrópu og Bandaríkin. Hann hefur leikið meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Konunglegu Dönsku Óperuhljómsveitinni, Dönsku Útvarpshljómsveitinni og Fílharmóníusveit Kaupmannahafnar.

Margir muna eftir mögnuðum leik Mörtu í Eldborgarsal Hörpu þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flutti Joker – Live to Film til heiðurs Hildi Guðnadóttur í kjölfar Grammy-, Óskars- og Emmy-verðlauna hennar. Segja má að Marta hafi alist upp með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands enda er hún dóttir Guðmundar Óla Gunnarssonar sem stjórnaði hljómsveitinni í 23 ár.

Hvenær
sunnudagur, febrúar 21
Klukkan
16:00-18:00