Til baka

Diddú og Örn - Sjómannadagslög, söngvar og sprell

Diddú og Örn - Sjómannadagslög, söngvar og sprell

Diddú og Örn Árnason hafa oft leitt saman krafta sína til að gleðja þá sem hafa gaman af góðri tónlist og léttu gríni.

Diddú og Örn Árnason (hálfur Hríseyingur! ) hafa oft leitt saman krafta sína til að gleðja þá sem hafa gaman af góðri tónlist og léttu gríni. Hafið heillar og nú ætla þau að syngja nokkur létt sjómannalög sem og önnur lög og sprella eins og þeim einum er lagið.

Kannski kíkir Bogi róni í heimsókn, Kattardúettinn fluttur og svo allt þar á milli.

Jónas Þórir annast píanóundirleik.

Skemmtistund sem enginn má missa af.

Hvenær
laugardagur, júní 6
Klukkan
17:00-19:00
Hvar
Menningarhúsið Hof