Til baka

Fasteignamartröðin

Fasteignamartröðin

Grátbroslegur samtímaskáldskapur um kómískan frumskóg húsnæðismarkaðarins.

Grátbroslegur samtímaskáldskapur um kómískan frumskóg húsnæðismarkaðarins.

Arnrún þarf að finna sér nýtt þak yfir höfuðið eftir óvænt sambandsslit. Hún getur ekki flutt aftur í foreldrahús, líst illa á leigumarkaðinn og ákveður því að kaupa sína fyrstu íbúð. Við tekur grátbroslegt og fáránlegt ferðalag í gegnum frumskóg bankastarfsmanna, fasteignasala og lánardrottna.

Hér er á ferðinni beittur og meinfyndinn spegill á raunveruleika ungs fólks í dag, þar sem persónusköpun í anda Sex and the City mætir absúrdveröld Kafka.

Verkið, sem er eftir litháenska leikskáldið Gabrielė Labanauskaitė, var valið besta erlenda leikritið á stærstu leikritunarhátíð Þýskalands árið 2021.

 

Leikstjórin og þýðing: Adolf Smári Unnarsson
Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir
Tónlist: Jóhannes Damian R. Patreksson
Hljóðhönnun: Gunnar Sigurbjörnsson
Ljósahönnun: Fjölnir Gíslason

Dramatúrg: Júlía Gunnarsdóttir

Hár og förðun: Harpa Birgisdóttir
Leikarar: Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Jökull Smári Jakobsson, Urður Bergsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir

Athugið: Aðeins sýnt í október og nóvember!

Hvenær
9. október - 7. nóvember
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Samkomuhúsið