Til baka

Formflæði

Formflæði

Myndlist

Myndlistakonan Dagrún Matthíasdóttir er búsett á Akureyri og er starfandi listamaður og myndmenntakennari. Dagrún fékk þann heiður að vera tilnefnd Bæjarlistamaður Akureyrar 2021 og er sýningin Formflæði hluti af því starfstímabili. Dagrún lærði í Myndlistaskólanum á Akureyri, Kennslufræði og Nútímafræði við Háskólann á Akureyri með viðkomu í skiptinámi í listfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur unnið við utanumhald viðburða og eitt verkefna hennar er List í Alviðru 2021-Milli fjalls og fjöru, þar sem hún tengdi saman listamenn frá Norðurlandi eystra og listamenn á Vestfjörðum í verkefni í gerð umhverfislistaverka.

Dagrún hefur einnig séð um rekstur og sýningarstjórn viðurkenndra sýningarstaða á Akureyri, Mjólkurbúðina og DaLí Gallery ásamt samstarfi í Listhópnum RÖSK sem er þekktur fyrir lifandi sýningastarf og gjörninga. Einnig hefur hún tekið virkan þátt í félagsstörfum í Listagilinu og er í stjórn Myndlistarfélagsins.

Þá hefurhún komið víða við á sýningarferli sínum sem myndlistamaður og tekið þátt í listahátíðum erlendis s.s.Kunst I Natur, Fjellfestival í Isfjorden í Noregi (2017, 2019), alþjóðlegu listverkefni á Mauritius í SA-Afríku (2017) og alþjóðlegum gestavinnustofum í Ungverjalandi og á Ítalíu. Listakonan vinnur í ólíka miðla listarinnar og er óhrædd við að fara nýjar leiðir, gera tilraunir með efni og hugmyndir og leyfa leikgleðinni að flæða. https://dagrunmatt.wordpress.com

 

Dagrún um sýninguna:

Við gerð listaverkanna vann ég með þemað form, flæði og einföldun og tókst á við bæði óreiðukennda málun og taktfasta samsetningu forma sem gefa stefið í sýningunni.

Málverkin eru hvorki háð merkingunni né frásögn heldur túlka þau sitt eigið stef, eru tilraunakennd og skipulögð í senn. Formin raðast saman eftir dintum listamannsins og er leikur að samsetningu og endurtekningu í frjálsu og litríku flæði, þar sem hver og einn getur skapað sinn eigin spuna í túlkun málverkana.

Í grafíkverkunum er það einfaldleikinn sem mótar verkin og eru það sömu formin og sjást í málverkunum. Útsöguð formin sem notuð voru til prentunar fá einnig að njóta sín á sýningunni í formi lágmynda.

 

Sýningin opnaði 28.maí og er opin á opnunartíma hússins til 15. ágúst.

Hvenær
28. maí - 15. ágúst
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri