Til baka

Gæðablóð

Gæðablóð

„Mig langar að túristar sjái mig og spyrji: Where is Hallgrímskirkja?“

Rappari úr Vesturbænum, fyrrum knattspyrnumaður úr Garðabænum og tónlistarmaður úr miðbænum sameina krafta sína í skemmtilegri og hispurslausri sýningu. Davíð Þór, Jónmundur og Unnsteinn eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir, en geta jafnframt rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa.

Í þessari einlægu sýningu deila þeir reynslu sinni af því að alast upp á Íslandi og sviðsetja sprenghlægileg jafnt sem grafalvarleg atvik úr eigin lífi. Sýningin afhjúpar samfélagið okkar á óvæntan hátt og veitir nýja innsýn í hinn margbreytilega veruleika. Eins og þeir segja sjálfir: „Ef þú ætlar að njóta lífsins sem litaður Íslendingur, þá þýðir ekkert að ætla að lifa bara venjulegu lífi.“

Tegund: Samtímaverk / Uppistand / Sagnagáfa
Athugið: Aðeins ein sýningahelgi!
Fyrir hvern: Alla sem elska góðar og heiðarlegar sögur

Hvenær
29. - 30. apríl
Klukkan
20:00-22:00