Til baka

HAMPARAT

HAMPARAT

Hljómsveitirnar HAM og Apparat Organ Quartet troðfylltu Eldborg fyrr á þessu ári undir samheitinu HAMPARAT. Það má fullyrða að þeir sem voru viðstaddir þennan samruna séu enn að jafna sig.

Gagnrýnendur voru á einu máli um að sjaldan hefði Eldborg verið nærri því að standa undir nafni og breyst í „vélrænt helvíti, og það var unaðslegt";, eins og Jónas Sen skrifaði svo eftirminnilega í fimm stjörnu dómi sínum á Vísi. Hann bætti við: „Ég veit ekki hvort ég get mælt með þessu. Ég veit ekki heldur hvort ég vil að þetta gerist aftur. En ef það gerist - þá verð ég mættur. Ekki af því ég vil það, heldur af því ég get ekki annað". „Hamparat sýndu fram á að tónlist getur verið meira en list - hún getur verið vopn". - „Þetta var árás á eðlilega skynsemi og hún heppnaðist fullkomlega.";

HAMPARAT hefur nú ákveðið að gleðja landsmenn með því að glæða aftur eldinn og gera enn betur, því veislan mun að þessu sinni hefjast á Akureyri þar sem heimamönnum mun gefast tækifæri til að sjá Hof fyllast eldglæringum úr neðra þann 20. febrúar.

Hvenær
föstudagur, febrúar 20
Klukkan
20:00-22:00