Til baka

HLIÐ VIÐ HLIÐ - Söngleikurinn

HLIÐ VIÐ HLIÐ - Söngleikurinn

Hlið við hlið söngleikurinn sem slegið hefur rækilega í gegn í höfuðborginni heldur nú norður á land og verður með eina sýningu í Hofi þann 30 október næstkomandi.

Hlið við hlið er söngleikur með lögum þjóðþekkta listamannsins Friðriks Dórs, sem sýndur hefur verið í Gamla bíói fyrir fullu húsi síðan í ágúst! Friðrik Dór er löngu orðinn landsþekktur tónlistarmaður og á hann mörg af vinsælustu lögum Íslands. Nú er loksins búið að gera söngleik með þekktustu lögum Frikka Dórs, en Hlið við hlið fjallar um borgarstrákinn Dag sem fær sumarvinnu á sveitahóteli þar sem allt er eins og það hefur verið í áraraðir. En koma hans virðist þrýsta á tengslin innan hótelsins að þolmörkum - skyndilega er sem öll fjölskyldutengsl, sambönd og vinskapir hanga á bláþræði.

Í þessari stórkostlegu sýningu leggjast allir á eitt til að sprengja út lögum Friðriks Dórs með því að segja þessa hugljúfu sögu. Falleg, skemmtileg og fyndin stórsýning sem allir hafa gaman af! Sýningin er annað verkefni sjálfstæðs sviðslistahóps sem settu upp sýninguna Ðe Lónlí Blú Bojs í Bæjarbíói í Hafnarfirði, en hún fékk mikið lof og seldust um 20 sýningar upp.

Endilega skoðið heimasíðu Hlið við hlið fyrir frekari upplýsingar! https://www.hlidvidhlid.is Eða fylgið okkur á samfélagsmiðlum! Facebook: https://facebook.com/hlidvidhlid Instagram: https://www.instagram.com/hlidvidhlid/

 

Hvenær
laugardagur, október 30
Klukkan
20:00-22:00