Til baka

Höfundahasar í Hömrum

Höfundahasar í Hömrum

Barnabókahátíð

Það verður sannkallaður höfundahasar fimmtudaginn 19. maí þegar þrír barnabókahöfundar lesa upp úr eigin verkum í Hömrum í Hofi. Barnabókahöfundarnir Bjarni Fritzson, Brynhildur Þórarinsdóttir og Gunnar Helgason mæta með bækurnar sínar.

Rán Flygenring, barnabókahöfundur og myndskreytir snarteiknar á staðnum eins og henni einni er lagið.  Áhugasamir geta prófað í lok viðburðar að snarteikna með hjálp Ránar.

Upplestur vinningshafa Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri, Snjóki M. Gunnarsson í Oddeyrarskóla kemur fram.

Kynnar eru nemendur úr Nausta- og Giljaskóla.

Viðburðurinn hefst klukkan 16.30.

Enginn aðgangseyrir - verið öll hjartanlega velkomin!

Hvenær
fimmtudagur, maí 19
Klukkan
16:30