Nemendamótsnefnd Verzlunarskóla Íslands kynnir með stolti söngleikinn "Hvar er draumurinn?" skrifaður og leikstýrður af Höskuldi Þór Jónssyni. Þessi húmoríski söngleikur nýtir sér frábæra smelli frá hljómsveitinni Sálin hans Jóns míns og segir frá ungmennum sem reyna að finna sig og njóta lífsins en þurfa að glíma við staðreyndina að lífið er ekki alltaf kók og lakkrísrör.
Það gleður okkur að kynna að við ætlum að flytja þessa 90's sprengju til Akureyrar og munum við sýna söngleikinn í Menningarhúsinu Hofi þann 22. apríl klukkan 19:00.