Til baka

Jólapartý Skoppu og Skrítlu

Jólapartý Skoppu og Skrítlu

Tónleikasýning Skoppu og Skrítlu snýr aftur!

Jólapartý Skoppu og Skrítlu sem sló í gegn á síðasta ári verður nú í Hörpu og Hofi á Akureyri. Öll fjölskyldan kemst í jólaskap á þessari glaðværu og hjartahlýju tónleikasýningu þar sem stuð og stemning mun ráða ríkjum! Með sér á svið fá þær glæsilega gestasöngvara sem setja sannkallaðan stjörnublæ á sýninguna – og tónlistin mun hreyfa við öllum, bæði litlum og stórum! Komdu með Skoppu og Skrítlu í fjörugt og spennandi jólapartý þar sem tónlist, gleði og töfrar jólanna fylla hjörtun!

Frábær sýning fyrir alla fjölskylduna!

Með helstu hlutverk:
Linda Ásgeirsdóttir
Hrefna Hallgrímsdóttir
Vigdís Gunnarsdóttir
Viktor Már Bjarnason
Páll Óskar Hjálmtýsson
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
ásamt 12 syngjandi og dansandi glöðum börnum.

Sýningin er 55 mín. 

Hvenær
föstudagur, desember 4