Jón Jónsson
Jón Jónsson er hafnfirskur gleðigjafi - tónlistarmaður sem allir þekkja. Hann er meðlimur IceGuys auk þess að hafa gefið út þrjár breiðskífur og fjöldann allan af stöklum síðan hann kom sem stormsveipur inn á sjónarsviðið árið 2010 með lagi sínu „Lately“. Hvort sem það er á sviði, í sjónvarpi eða íþróttum eru það ávallt einstök orka og persónutöfrar Jóns sem skína í gegn.
Hann slær taktinn í dagskrá Akureyrarvöku í Hofi með stuði og stemningu fyrir alla fjölskylduna af alkunnri snilld.
Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarbæ og í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar
Frítt er á alla viðburði Akureyrarvöku í Hofi.