Skráning er hafin í Nordic Film Path – alþjóðlegt kvikmyndagerðarnámskeið fyrir 16–23 ára ungmenni.
📍 Järvsö, Svíþjóð
📅 5.–12. ágúst 2026
Þátttakendur læra alla helstu þætti kvikmyndagerðar og vinna eigin stuttmynd sem verður sýnd opinberlega um haustið. Að námskeiði loknu fá þau aðild að Nordic Film Youth Network.
✔ Aðeins átta pláss í boði frá Íslandi (aðeins opið fyrir umsækjendur frá Norðurlandi Eystra)
✔ Valið verður úr umsóknum
✔ Svör berast 8. maí
Þátttökugjald: 33.400 kr. (Við staðfestingu á inntöku þarf að greiða 12.000 kr. Staðfestingargjald sem er óafturkræft).
Unnið er að ferðastyrkjum
Umsóknarfrestur: 4. maí á miðnætti
Sæktu um hér