Til baka

La Traviata

La Traviata

Gestir á La Traviata þurfa að framvísa neikvæðu hraðprófi sem ekki má vera eldra en 48 klst. Nauðsynlegt er að bóka tíma í hraðpróf. Heimapróf eru ekki tekin gild.
 
Hér er skráning í hraðpróf vegna viðburðar. Skráðu þig á síðunni og fáðu strikamerki og tímasetningu. Niðurstöðurnar færðu svo innan við klukkutíma í símann eða tölvupóstinn. Ef þú greinist ekki með covid færðu skilaboð þess efnis sem þú sýnir við komuna í Hof. Vinsamlega hafðu gögnin tilbúin. Það flýtir fyrir ef þú kemur með útprentaða niðurstöðu. Hraðprófin eru frí.

 

 

 

Opnunartíminn v hraðprófa:

HSN í Strandgötu 31

Laugardag 11.15- 16

Sunnudag 11.15-15

 

Borgum

Lau 10-14

Sunnudag lokað

 

 

 

Á undan sýningum á La traviata segir Guðni Tómasson, tónlistaráhugamaður og dagskrárgerðarmaðurá Rás 1, frá verkinu og sköpun þess. Hann staðsetur óperuna í tónsmíðaferli Verdis, segir frá ritskoðunartilburðum og pólitískum titringi í kringum þetta vinsæla verk sem kann að virðast saklaust í dag en var það alls ekki þegar óperan var frumsýnd.

Guðni tekur til máls um það bil klukkustund fyrir sýningarnar.

Aukasýning verður sunnudaginn 14. nóvember klukkan 16!

Það eru gleðifréttir fyrir marga óperuunnendur að óperan La Traviata eftir Verdi sem hætti fyrir fullu húsi vorið 2019 verður tekin upp og sýnd aftur í Eldborg þann 6. og 7.11. og Hofi þann 13.11. 2021 Aðalhlutverkið verður sem fyrr sungið af Herdísi Önnu Jónassdóttir sem fékk frábæra dóma og fékk Grímuverðlaunin sem söngvari ársins fyrir túlkun sína á hlutverki Víólettu.
Óperan fékk frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda innanlands og erlendis en hún fjallar um lífsgleðina, frelsið og forboðna ást og er í þremur þáttum. Óperan var frumflutt í Feneyjum 6. mars árið 1853 og textinn sem er eftir Francesco Maria Piave er byggður á leikgerð skáldsögunnar Kamelíufrúin eftir Alexandre Dumas.
Óperan hét upphaflega Violetta eftir aðalpersónunni og þykir ein sú allra fallegasta sem samin hefur verið.

Hljómsveitarstjóri Anna- Maria Helsing
Leikstjóri Oriol Tomas,
Leikmyndahönnuður Simon Guilbault,
Búningahönnuður Sébastien Dionne
Ljósahönnuður; Erwann Bernard
Videóhönnuður er Félix Fradet-Faquy.

Miðasala hér á www.mak.is

HLUTVERK
Violetta Valéry
Herdís Anna Jónasdóttir

Alfredo Germont
Rocco Rupolo

Giorgio Germont, faðir Alfredos
Hrólfur Sæmundsson

Flora Bervoix, vinkona Violettu
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir

Annina
Hrafnhildur Árnadóttir

Gastone
Snorri Wium

Barón Douphol
Oddur Arnþór Jónsson

Markgreifinn af Obigny
Aðalsteinn Már Ólafsson

Grenvil læknir
Valdimar Hilmarsson

Kór íslensku óperunnar og dansarar koma einnig fram í sýningunni. Kórstjóri er Magnús Ragnarsson

Sögulegt samstarf; Þetta mun verða í fyrsta sinn sem Íslenska óperan og Menningarfélag Akureyrar stofna til formlegs samstarfs varðandi óperuuppfærslur, en La traviata verður sýnd bæði tvisvar í Eldborg og einnig í Hofi á Akureyri viku síðar og mun Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sjá um hljómsveitarleikinn á öllum sýningunum undir stjórn finnska hljómsveitarstjórans Anna -Maria Helsing sem nýverið kom fram á Proms hátíðinni í Royal Albert Hall og hefur unnið áður með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

 

Hvenær
laugardagur, nóvember 13
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri