Til baka

Lífið er konsert

Lífið er konsert

Karlakór Eyjafjarðar fagnar 30 ára afmæli sínu með stórtónleikunum í Hofi á Akureyri þar sem léttleiki í lagavali og flutningi verður í fyrirrúmi. Á efnisskránni verða lög sem fólk þekkir í flutningi ýmissa vinsælla hljómsveita eins og t.d. Gautar, Ingimar Eydal, Skriðjöklarnir, Greifarnir, Baraflokkurinn, Póló og Bjarki og Magnús Eiríksson. Einnig verða flutt lög eftir Óðinn Valdimarsson, Bjarna Hafþór og Eirík Bóasson. Þá verða einnig flutt sígild kórlög eins og t.d. úr Vesalingunum.

Guðlaugur Viktorsson stjórnar kórnum, Daníel Þorsteinsson verður hljómsveitarstjóri stórhljómsveitar. Snorri Snorrason og fleiri munu syngja einsöng í völdum lögum.

Karlakór Eyjafjarðar býður ykkur velkomin á einstaka tónleika þar sem þekkt lög munu vekja upp endurminningar um ljúfar stundir liðinna áratuga.

Hvenær
laugardagur, október 24
Klukkan
16:00-18:00