Til baka

Ljós í myrkri

Ljós í myrkri

Stórviðburður í Hofi

Eftir að Akureyringurinn og kvikmyndatónskáldið Atli Örvarsson sagði skilið við hljómsveitarlífið á Íslandi fór hann erlendis og stundaði nám í hinum virta Berklee háskóla með höfuðáherslu á kvikmyndatónlist. Í beinu framhaldi kláraði hann mastersnám í North Carolina School of Arts. Síðan þá hefur hann samið og útsett tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti við mjög góðan orðstír og er hann í dag eitt eftirsóttasta kvikmyndatónskáld í heimi.

Hann hefur verið tilnefndur til Grammy verðlauna og í lok apríl 2024 fékk hann Bafta verðlaunin fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Silo sem sýndir eru á sjónvarpsveitu Apple, Apple TV+.

Hér má sjá og heyra frá Atla sjálfum hvernig hljóðheimur Silo varð til

Í fyrsta sinn á Íslandi mun fyrsti þáttur Silo vera sýndur á bíótjaldi þar sem Sinfóníuhljómsveit Norðurlands mun spila undir. 

Einnig mun Ljós í myrkri, nýtt verk eftir Atla verða frumflutt.

Hljómsveitarstjóri: Atli Örvarsson

Kór: Kór Akureyrarkirkju 

Einsöngur: Þórhildur Örvarsdóttir.

Hvenær
fimmtudagur, apríl 2
Klukkan
16:00-18:00