Til baka

Malinche

Malinche

Verðandi

Malinche (English below)

Malinche er holdgervingur þess margræða, þar sem menningarheimar mætast og bræða saman skilning, þekkingu, tengsl og vald svo úr verður dýrðlegur vellingur. „Hvorki sól né snjór, hvorki hér né þar - aðeins þræðir nýrrar sýnar, fléttaðir í rætur sjálfsins.“

Malinche er hin eina sanna útópía, ofin úr ull þar sem allir eru velkomnir óháð uppruna, bakgrunni eða kynþætti. Fyrri hópaskiptingar samfélagsins eru brotnar á bak aftur. Þverfaglegt samtímadansverk þar sem íslensk ull, margbrotin ljósasýning, dulúðleg hljóðmynd og þrír dansarar koma saman.

Danshöfundur: Yuliana Palacios
Dansarar: Arna Sif Þorgeirsdóttir og Ólöf Ósk Þorgeirsdóttir
Meðhöfundar hreyfinga: Emil Gunnarsson og Gabriel Marling Rideout.
Tónlist: Jón Haukur Unnarsson
Innsetning og búningahönnun: Ásta Guðmundsdóttir

Malinche er unnið með stuðningi frá opinberu styrkjakerfi listsköpunar og menningarverkefna í Mexíkó (s. Sistema de Apoyos a la Creación y Proyectos Culturales).

Viðburðurinn er styrktur af Verðandi listsjóði.

Hvenær
föstudagur, júní 12
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Menningarhúsið Hof