Til baka

Manstu gamla daga

Manstu gamla daga

Tónlistarveisla í tilefni af 40 ára afmæli Félags eldri borgara á Akureyri í Hamraborg í Hofi á Akureyri sunnudaginn 2. október kl. 16:00.

Fyrst og fremst verða fluttar perlur frá því í ,,gamla daga“, lög sem voru á toppnum á gullaldarárum þeirra sem nú teljast til (h)eldri borgara.

Meðal flytjenda verða tónlistarmenn og söngvarar sem gerðu mörg þessara laga vinsæl á sínum tíma, en einnig koma yngri tónlistarmenn við sögu, til að læra af reynsluboltunum!

Milli laga verða sýnd atriði úr gömlum kvikmyndum, sem segja brot sögu Akureyrar allt frá miðri síðustu öld.

Hljómsveitarstjóri verður Daníel Þorsteinsson, en með honum leika Friðrik Bjarnason, Snorri Guðvarðsson, Grímur Sigurðsson, Valmar Väljaots, Haraldur Gunnlaugur Hauksson, Sævar Benediktsson, Gunnar Ringsted og Kristján Guðmundsson.

Helena Eyjólfsdóttir verður heiðursgestur tónleikanna, en auk hennar syngja Óskar Pétursson, Margrét Árnadóttir, Magni Ásgeirsson, Saga Jónsdóttir, Grímur Sigurðsson, Þór Sigurðarson, og Petra Björk Pálsdóttir, auk þess sem hljómsveitarmeðlimir taka lagið með þeim, enda raddmenn góðir.

Kórinn Í fínu formi syngur undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur. Einsöngvari með kórnum verður Margrét Árnadóttir. Karlakór Akureyrar-Geysir rekur endahnútinn á tónleikana undir tjórn Valmars Väljaots við undirleik hljómsveitarinnar. Óskar Pétursson syngur einsöng með kórnum. Lokalagið syngja svo allir saman, kórfólkið, einsöngvarar, hljómsveitin og tónleikagestir.

 

Milli laga verða sýndar gamlar kvikmyndir úr sögu Akureyrar, sem sumar hverjar hafa aldrei verið sýndar áður.

Hvenær
sunnudagur, október 2
Klukkan
16:00-18:00