Jón Þorsteinn Reynisson, harmonikuleikari, hefur undanfarin ár tekið þátt í margvíslegum tónlistarverkefnum, og starfar einnig í nokkrum tónlistarhópum sem reglulega vinna að nýjum verkefnum. Má þar nefna Tríó Mýr, ítríó, Hnoðri í Norðri og Tríó Akureyrar. Hver og einn þessara tónlistarhópa hafa sitt sérkenni í efnisvali, s.s. nútímatónlist, þjóðlagatónlist, dægurtónlist, leikhús eða óperulist. Nú mun hann töfra fram ljúfa djasstóna á þessum forvitnilega og spennandi Miðvikudjassi í Móa Bistró í Hofi á Listasumri.
Hvað er betra en ljúfir djasstónar? - komið og njótið með okkur.
Frítt inn og öll velkomin.
Það er Menningarfélag Akureyrar, Akureyrarbær og Mói Bistró sem bjóða gestum Listasumars á Akureyri að njóta djassaðra tóna í Hofi fjóra miðvikudaga í röð.
Viðburðurinn er hluti af Listasumri 2025