Til baka

MIÐVIKUDJASS í Móa - Baby Bop

MIÐVIKUDJASS í Móa - Baby Bop

Baby Bop er djassdúett skipaður þeim Dimitrios og Elías á gítar og kontrabassa

Baby Bop er djassdúett skipaður þeim Dimitrios og Elías á gítar og kontrabassa.

Þeir munu spila blús, swing, bebop, latin og frumsamið efni fyrir gesti og gangandi.

Baby Bop byrjaði sem hljómsveit og hefur verið starfrækt síðan 2021 en hefur þó tekið nokkrum breytingum á þessum fjórum árum. Í fyrstu voru það gítarleikararnir Dimitrios Theodoropoulos og Jóel Örn Óskarsson sem stofnuðu dúett með því markmiði að búa til pláss fyrir ungt tónlistarfólk í djassi og spuna. Árið 2022 bætist Elías Dýrfjörð við á bassa og varð til tríó, en nú er Baby Bop dúett.

Hvað er betra en ljúfir djasstónar, komið og njótið með okkur.

Frítt inn og öll velkomin.

Það er Menningarfélag Akureyrar, Akureyrarbær og Mói Bistró sem bjóða gestum Listasumars á Akureyri að njóta djassaðra tóna í Hofi fjóra miðvikudaga í röð.

 


Viðburðurinn er hluti af Listasumri 2025

Hvenær
miðvikudagur, júlí 16
Klukkan
16:00-17:00
Hvar
Hof Cultural and Conference Centre, Strandgata, Akureyri