Til baka

Nýkveikt tungl

Nýkveikt tungl

Kammerkór Norðurlands undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar heldur tónleika í Hömrum og þakkar kórinn styrk frá Verðandi listsjóði til tónleikahalds í Hofi . Á efnisskrá tónleikanna verða íslensk kórverk. Frumflutt verða alls sjö ný, íslensk kórverk sem samin voru sérstaklega fyrir kórinn. Kammerkór Norðurlands er metnaðarfullur kór sem hefur vakið athygli víða um land fyrir sinn þétta og þroskaða hljóm. Kórinn er sem lifandi hljóðfæri í höndum hins landsþekkta stjórnanda, Guðmundar Óla, en hann hefur með sinni einstöku hæfni náð að draga fram það besta í röddum kórsins til að byggja upp samhljóm hans sem er í senn þéttur, mikill og þroskaður en jafnframt tilfinningaríkur í túlkun sinni í mjúkum og viðkvæmum köflum kórtónverka. Kammerkór Norðurlands hefur á starfsárum sínum lagt sitt af mörkum til menningarlífs á Norðurlandi; m.a. haldið fjölbreytta tónleika og tekið þátt í ýmiss konar samstarfsverkefnum, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Verið hjartanlega velkomin á tónleika.

Miðasala hefst þegar nær dregur. 

Hvenær
sunnudagur, október 11
Klukkan
15:00-17:00