Til baka

Páll Óskar og Kristín syngja Klassískt Popp

Páll Óskar og Kristín syngja Klassískt Popp

Stórtónleika klassísku poppmeistaranna ásamt 16 manna hljómsveit

Páll Óskar Hjálmtýsson og Kristín Stefánsdóttir munu blása til stórtónleika klassísku poppmeistaranna ásamt 16 manna hljómsveit einvala liðs fremstu tónlistarmanna landsins; blásara- og strengjasveitar.

Dusty Springfield, The Beatles, Carpenters, Dionne Warwick, Aretha Franklin, Beach Boys ásamt fleirum verða gerð skil á þessum glæsilega viðburði.

Pál Óskar þarf ekki að kynna, enda er hann einn ástsælasti tónlistarmaður landsins. Hann er mikill aðdáandi klassíska poppsins og hefur sungið og haldið fjölda tónleika með lögum meistaranna og hefur algjöra sérstöðu hvað það varðar. Kristín er sömuleiðis mikill aðdáandi þessarar tónlistar og hefur haldið nokkra stóra og glæsilega tónleika við góðar undirtektir. Hún hefur haldið tónleika með lögum Burt Bacharach og Carpenters og einnig tónleika með lögum Noruh Jones.

Hér á eftir er glæsileg umfjöllun gagnrýnandans Jónasar Sen á tónleikunum í september 2023 í Salnum í Kópavogi: https://www.visir.is/g/20232463877d/sumt-sem-gloir-er-einfaldlega-gull

Páll Óskar Hjálmtýsson, söngur
Kristín Stefánsdóttir, söngur
Raddir: Elísabet Ólafsdóttir Gísli Magna Sigríðarson Gógó

Hljómsveit:
Hlynur Þór Agnarsson, píanó, hljómsveitarstjórn, raddir og útsetningar
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Róbert Þórhallsson, bassi
Erik Qvick, trommur

Blásarasveit:
Snorri Sigurðarson, trompet
Samúel Jón Samúelsson, básúna
Haukur Gröndal, altosaxófónn, flauta, klarinett
Björgvin Ragnar Hjálmarsson, tenórsaxófónn
Rósa Guðrún Sveinsdóttir, baritónsaxófónn, flauta, raddir

Strengjasveit:
Matthías Stefánsson, fiðla
Sigrún Harðardóttir, fiðla
Karl James Pestka, víóla
Unnur Jónsdóttir, selló

Frá Burt Bacharach tónleikum Kristínar; The Look of Love https://www.youtube.com/watch?v=HFoXWrTnX_s&ab_channel=KristinStefansdottir
I say a little Prayer https://www.youtube.com/watch?v=dD1EL5SYxoQ&ab_channel=KristinStefansdottir

Missið ekki af þessum einstaka viðburði.

Hvenær
laugardagur, apríl 6
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri