Til baka

Prinsinn

Prinsinn

18 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum í leit að töffaralegum fötum. Síminn hringir, þetta er sæta stelpan sem var að vinna á Prinsinum í sumar. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Andstæðar tilfinningar sækja að honum næstu mánuði. Ótti, afneitun, sjálfsvorkunn, kvíði, vonleysi, þunglyndi. Og svo byrjar hann að verða spenntur. Sátt, friður, bjartsýni, ábyrgðarkennd og tilhlökkun taka við. Ungi maðurinn ákveður með sjálfum sér að verða heimsins besti pabbi. En er hann örugglega sá eini sem kemur til greina sem faðir barnsins?

Tuttugu árum síðar, þegar ungi maðurinn er orðinn leikari og rekur lítið leikhús á landsbyggðinni, sest hann niður með leikstjóra og þau skoða þetta mál saman. Þau taka viðtöl við fólkið sem kemur við sögu. Ýmislegt óvænt kemur í ljós. Er maður áreiðanlegt vitni í sinni eigin sögu? Er hægt að muna hlutina rétt? Sýningin verður þróuð í Þjóðleikhúsinu og á Rifi, þar sem hún verður frumsýnd. Svo heldur leikhópurinn í leikferð um landið og að endingu hefjast sýningar í Reykjavík.

 

Höfundar

María Reyndal og Kári Viðarsson

Leikstjóri

María Reyndal

Leikmynd

Guðný Hrund Sigurðardóttir og Egill Ingibergsson

Búningar

Guðný Hrund Sigurðardóttir

Tónlist

Úlfur Eldjárn

Hljóðhönnun

Úlfur Eldjárn

Ásta Jónína Arnardóttir

Lýsing

Jóhann Friðrik Ágústsson


Nánar um sýninguna:

https://leikhusid.is/syningar/prinsinn/

Hvenær
17. - 18. maí
Klukkan
20:00-22:00