Samorkuþingið er stærsta fagráðstefna í orku- og veitugeiranum á Íslandi. Þingið er haldið á þriggja ára fresti á Akureyri og boðið er uppá fjölbreytta dagskrá með metnaðarfullum erindum og vinnustofum þar sem fjallað er um alla þætti starfsemi aðildarfyrirtækja Samorku: Hitaveitur, vatnsveitur, fráveitur, framleiðslu, flutning, dreifingu og sölu á raforku – frá mörgum hliðum – allt frá auðlindum, framkvæmdum, stoðstarfsemi og til samskipta við viðskiptavini. Þá eru ýmis mikilvæg sameiginleg málefni tekin fyrir í sérstökum málstofum og vinnustofum, t.d loftslagsmál, skipulagsmál, veitustarfsemi, orkustefna, orkuskipti, jafnréttismál, orkuöryggi, samskiptamál, umhverfismál og fleira.
Skráning er á ráðstefnuna. Síðasti skráningardagur er 4.maí. https://samorkuthing.is/