Til baka

Sigfús Halldórsson 100 ára

Sigfús Halldórsson 100 ára

ATH. tónleikunum er frestað, ný dagsetning er 12. maí 2022. 

SIGGA BEINTEINS,GUÐRÚN GUNNARS OG JOGVAN HANSEN SYNGJA VINSÆLUSTU LÖG SIGFÚSAR HALLDÓRSSONAR Í HOFI þann 12. maí

HLJÓMSVEIT: Gunnar Gunnarsson píanó, Ásgeir Ásgeirsson gítar og Þorgrímur Jónsson kontrabassi.

SÉRSTAKIR GESTIR: KARLAKÓR AKUREYRAR-GEYSIR

Við eigum samleið hópurinn, Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jogvan Hansen héldu sérstaka tónleika í Salnum í haust, þar sem þau fluttu vinsælustu lög Sigfúsar Halldórssonar en Sigfús hefði orðið 100 ára árið 2020 en vegna heimsfaraldursins þurfti að fresta tónleikunum. Undanfarin 6 ár hefur þetta vinsæla tríó, Sigga,Guðrún og Jogvan, haldið tónleika fyrir fullu húsi í Salnum í Kópavogi og víða um land. Saman hafa þau sungið gömlu góðu dægurlagaperlurnar sem allir elska og allir kunna. Dagný, Tondeleyjó, Við eigum samleið, Lítill fugl og í grænum mó, hafa átt fastan sess á tónleikum þeirra og núna bætast enn fleiri perlur við úr lagasafni Sigfúsar. Sigga,Guðrún og Jogvan eru meðal ástsælustu söngvara landsins og hafa af hjartans einlægni og áhuga flutt gömlu góðu dægurlögin í gegnum árin sem hefur gert þessa tónleika þeirra einstaklega skemmtilega og vinsæla með eindæmum. Nú gefst einstakt tækifæri á að heyra þau syngja vinsælustu lögin hans Fúsa með einvala liði hljóðfæraleikara og nú í Hofi bætist við Karlakór Akureyrar-Geysir.


 

Hvenær
fimmtudagur, maí 12
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri