Á skólatónleikum Sirkussveitar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hofi þann 18. og 19. maí 2026 verður leikin hress og skemmtileg tónlist innblásin af undraverðum tónum sirkusins, meðal annars lög úr teiknimyndinni Dúmbó, Entrance of the Gladiators og Can-Can.
Sirkusstjóri er engin önnur en Margrét Eir. Barnvæn skemmtun þar sem áhorfendum gefst tækifæri á að taka þátt í sýningunni auk þess að hitta hljóðfæraleikara og prófa ýmis hljóðfæri.
Sérstakir gestir verða nemendur úr blásarasveitum Tónlistarskólans á Akureyri.
Sóley Björk Einarsdóttir sér um hljómsveitarstjórn og útsetningar.
Blásarasveitir Tónlistarskólans á Akureyri eru samansettar úr blásara- og slagverksnemendum á öllum aldri. Sveitinar spila fjölbreytta tónlist og koma fram við hin ýmsu tilefni á Akureyri. Til dæmis hafa árlegir Hrekkjavökutónleikar þeirra slegið í gegn hjá bæjarbúum.
Lúðrasveit Akureyrar hefur þjónað og skemmt Akureyringum í 80 ár, fært bæjarbúum margar ánægjustundir og átt þátt í að setja hátíðarbrag á fjölmargar samkomur á þessu tímabili.
Á hátíðarstundum er leitað til lúðrasveita, en leikur þeirra er ómissandi þegar sérstök tilefni eru til hátíðarhalda.