Til baka

Skilaboðaskjóðan

Skilaboðaskjóðan

Litríkt, spennandi og skemmtilegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna!

Í tilefni af stórafmælum Leikfélags Akureyrar og Samkomuhússins setjum við upp þessa ástsælu fjölskyldusýningu eftir Þorvald Þorsteinsson. Við fylgjumst með Putta og Möddumömmu í Ævintýraskóginum þar sem allt getur gerst. Þegar Nátttröllið rænir Putta þurfa íbúar skógarins að taka höndum saman og bjarga honum áður en sólin sest. En þegar nornin, úlfurinn og stjúpan neita að hjálpa til verða góð ráð dýr!

Verkið er fullt af frábærum persónum, bráðfyndnum orðaleikjum og grípandi tónlist eftir Jóhann G. Jóhannsson sem flest ættu að kannast við.

Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson
Leikmynd: Sigríður Sunna Reynisdóttir
Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir
Tónlistarstjórn: Sóley Björk Einarsdóttir
Hljóðhönnun: Gunnar Sigurbjörnsson
Ljósahönnun: Lárus Sveinsson
Hár og förðun: Harpa Birgisdóttir
Leikarar: Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Jökull Smári Jakobsson, Urður Bergsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir og börn og ungmenni

Tegund: Barna- og fjölskyldusöngleikur
Fyrir hvern: Alla aldurshópa

Hvenær
13. febrúar - 4. apríl
Klukkan
16:00-18:00