Til baka

Slakureyri 2022

Slakureyri 2022

Listasýning


“Hann er duglegur að læra, þegar hann er ekki að teikna.” sagði umsjónakennari minn í foreldraviðtali
snemma á grunnskólagöngu minni.
Alla mína æfi, hef ég elskað að teikna skrítnar myndir og skrifa skrítnar sögur. En í því hugarrými hef ég
fundið hugarró, eyrð og rólyndi sem ég hef fundið hvergi annars staðar. Nú bíð ég ykkur að koma og
staldra við inn í þeim hugblæ og njóta afraksturs listsköpunar síðustu mánaða.”
Rauðhærður, litblindur, örvhenntur og ómenntaður listamaður með mikla ástríðu og hugsjón fyrir
listunum heldur nú sýningu í Naust í Hofi. Verkin á sýningunni munu fókusera mikið á háfleygar
hugmyndir þar sem sköpunargáfa, húmor og 'utan-kassa' sögur fá að njóta sín. Stíll verkanna er mikið til
innblásinn af teiknimyndum evrópskra súrrealista frá 6. og 7. áratug síðustu aldar.
Listamaðurinn Aron Snær Fannarsson, annars þekktur sem Piparon, er fæddur og uppalinn á Skagaströnd
en býr nú á snotrum sveitabæ skammt frá Blönduósi þar sem hann vinnur sem vélamaður við sorpurðun í
Stekkjarvík.

Sýningin verður í salnum Nausti í Hofi frá kl. 12:00-18:00 þann 13.ágúst 2022 

Verðandi listsjóður 

Hvenær
laugardagur, ágúst 13
Klukkan
12:00-18:00