Sólrún Svava Kjartansdóttir er ungur og upprennandi fiðluleikari frá Akureyri en hún er þessa stundina búsett í Dyflinni þar sem hún leggur stund á nám í fiðluleik við The Royal Irish Academy of Music. Á þessum tónleikum býður Sólrún ykkur að hrífast með á vængjum ástarinnar og hlýða á fiðlumeistaraverk rómantíska tímabilins. Flutt verða verk eftir Franck og Dvorak ásamt fleirum.
Miðasala hefst þegar nær dregur.